Topphross

Hrossaræktun

Jan

10

Flottar myndir af Vigdísi

By bryndis

Hekla náði nokkrum flottum myndum af Vigdísi um daginn, hér eru þær:

Vigdís og Hekla á flottu brokki

Vigdís og Hekla á flottu brokki

.. og tölt

.. og tölt

Þær eru frekar flottar saman..

Þær eru frekar flottar saman..

Dec

26

Díana, Vör og Vigdís

By bryndis

Díana og Vör kláruðu sína 3 mánaða tamningu nú í mánuðinum hjá Jóni Kristni. Þær eru bara á fjórða vetur svo nú fara þær í pásu og svo sjáum við til hvað við gerum með þær í vetur. Við tókum þær inn í hús til Magga þar sem þær eru í dekri enda eiga þær það skilið, báðar búnar að taka tamningu virkilega vel, vel þroskaðar og hæfileikaríkar.

Myndasyrpa af Díönu og Vör:

Díana er glæsileg hryssa undan Kommu og Natan frá Ketilsstöðum

Díana er glæsileg hryssa undan Kommu og Natan frá Ketilsstöðum

Díana, 3 mánaða tamin

Díana, 3 mánaða tamin

Díana og Jón Kristinn

Díana og Jón Kristinn

Vör er undan Viðju frá Hafnarfirði og Eldjárn frá Tjaldhólum

Vör er undan Viðju frá Hafnarfirði og Eldjárn frá Tjaldhólum

Svo kíktum við á Vigdísi sem er árinu eldri en Díana og Vör. Hún er í tamningu hjá Heklu Katharínu og gengur það mjög vel. Ég ætlaði að ná fullt af myndum en svo kom snjóstormur svo við héldum okkur innandyra og myndavélin réði illa við það… Hér eru samt 2 myndir:

Vigdís er undan Vör frá Ytri-Reykjum og Kramsa frá Blesastöðum

Vigdís er undan Vör frá Ytri-Reykjum og Kramsa frá Blesastöðum

Á brokki..

Á brokki..

Dec

18

Glaumur…

By bryndis

Nú er allt komið á fullt í hestunum, húsið fullt og nokkur hross í tamningu hingað og þangað. Finnur er að þjálfa Glaum sem er 6 vetra geldingur undan Kæti frá Skollagróf og Gulltoppi frá Húsanesi. Við höfum ekkert verið að flýta okkur með Glaum, höfum alltaf verið hrifin af honum enda fallegur hestur með flott skref. Núna er hann allur að koma til og að verða mjög flottur alhliða hestur. Ég tók myndir af þeim í reiðtúr um helgina og hér er sýnishorn:

Glaumur í sveiflu

Glaumur í sveiflu

Glaumur- des 2011

Glaumur og Finnur

Glaumur

Dec

1

Meira um tryppi í tamningu

By bryndis

Við tókum út tryppin hjá Jóni Kristni nú fyrir stuttu. Þau hafa nú verið öll í 2 mánuði og lofa öll góðu.

Hugur frá Hafnarfirði- foli á fimmta vetur, undan Hrönn frá Ytri-Reykjum og Kramsa frá Blesastöðum, byrjar vel. Hann er efni í fimmgangara, stórstígur með fótaburði, allt galopið. Við ákváðum að gefa honum pásu í bili, slepptum honum á Skíðbakka.

Hugur og Jón Kristinn

Hugur og Jón Kristinn

Vídjó-Hugur og Jón Kristinn

Díana frá Hafnarfirði- hryssa á fjórða vetur, undan Kommu frá Ketilsstöðum og Natan frá Ketilsstöðum, byrjar mjög vel. Hún sýnir brokk og tölt, er að fá vilja áfram og er klárlega með flott fas.

Vídjó-Díana og Jón Kristinn

Vör frá Hafnarfirði- hryssa einnig á fjórða vetur, undan Viðju frá Hafnarfirði og Eldjárn frá Tjaldhólum, byrjaði mjög hörð og stygg. Er nú orðin ljúf í umgengni en hörkutól. Farin að tölta og sýnir mikið rými.

Vör og Jón Kristinn

Vör og Jón Kristinn

Vídjó- Vör og Jón Kristinn

Nov

19

Vigdís frá Hafnarfirði

By bryndis

Vigdís er 4 vetra gömul hryssa undan Vör frá Ytri-Reykjum og Kramsa frá Blesastöðum. Hún var frumtamin af Bjarna Bjarnasyni síðasta haust og nú hefur Hekla Katharína verið með hana í mánuð. Margt hefur gerst á þessum mánuði, Vigdís farin að tölta, brokkið mjög gott, viljinn góður, flottar hreyfingar og næmni.

Ég tók myndband af þeim stöllum, Heklu og Vigdísi, í dag og tók um leið út mánaðartamninguna og var mjög ánægð með árangurinn.

Hér er myndbandið : Vigdís og Hekla í nóv.2011

Oct

30

Snarpur í tamningu

By bryndis

Snarpur frá Hæl er 5 vetri foli undan Óði frá Brún og Hörpu frá Steðja. Harpa er hryssa í eigu Hörpu og Jóa á Hæl og hefur hún gefið flotta hesta. Við fengum hana að láni 2005 og héldum henni undir Óð en Snarpur er eina Óðsafkvæmið okkar.

Snarpur var frumtaminn síðasta sumar, fékk 1 mánaðar tamningu þá og hefur nú verið í tamningu hjá Lilju í 2 mánuði.

Hann kemur vel út, er viljugur og “ákveðinn”, með gott tölt og fínt brokk, örugglega fullt af skeiði líka. Hann lyftir löppum og á auðvelt með að koma í flottan höfuðburð.. sem sagt efnilegur hestur.

Ég tók nokkrar myndir af Snarpi, ekkert vídjó í þetta sinn..

Snarpur og Lilja

Snarpur og Lilja

Snarpur og Lilja í reiðhallarvinnunni

Snarpur og Lilja í reiðhallarvinnunni

Oct

16

Hausttamningar teknar út

By bryndis

Fjögur tryppi hafa verið í frumtamningu nú í haust hjá Jóni Kristni tamningamanni á Stokkseyri. Þetta eru þrjár hryssur, 3 vetra gamlar, og 1 geldingur, 4 vetra gamall.

Villimey, undan Hörpu frá Hafnarfirði og Spóa frá Geirshlíð, er búin að vera í 2 mánuði og fengum við að sjá hana í reið í dag áður en við slepptum henni. Það var mjög gaman að sjá hana í reið, hún er fljót til, ljúf og geðgóð og með mjög flottar hreyfingar, efnileg hryssa. Flott brokk og töltið opið. Hér eru myndir teknar af Villimey í dag:

Villimey 2 mánaða tamin

Villimey 2 mánaða tamin

Villimey og Jón Kristinn

Villimey og Jón Kristinn

Hugur, undan Hrönn frá Ytri-Reykjum og Kramsa frá Blesastöðum, hefur nú fengið mánaðar tamningu og fengum við að sjá hann í reið. Hann er virkilega myndarlegur foli með flottar hreyfingar, góða fótlyftu og galopinn, verður væntanlega vakur.

Hugur á hreyfingarmiklu brokki

Hugur á hreyfingarmiklu brokki

Díana (M: Komma frá Ketilsstöðum F: Natan frá Ketilsstöðum) og Vör (M: Viðja frá Hafnarfirði F: Eldjárn frá Tjaldhólum) fóru á sama tíma og Hugur í tamningu, búnar með mánuð. Þær eru einnig efnilegar og verða vonandi flottar myndir teknar af þeim í næstu úttekt.

Sep

27

Victor til Austurríkis

By bryndis

Victor frá Hafnarfirði er nú farinn til Austurríkis til nýrra eigenda. Klárlega munum við sakna hans, enda frábær hestur og hefur hann verið aðal reið og keppnishestur pabba í gegnum árin. En nú tekur bara vonandi einhver af yngri hestunum við, við teljum okkur vera með nokkra góða kandídata í það..

Victor er nú 10 vetra gamall og hefur gert það gott í töltkeppnum, hjá pabba, Páli Braga og Danna. Hans aðall er tölt og er hann mjög mikill karakter, viljugur og skemmtilegur. Hann er fimmta afkvæmið undan Vör sem fer út, Vafi bróðir hans fór einnig til Austurríkis, Vænting til Þýskalands, Vaka til Noregs og Viðun til Svíþjóðar. En við örvæntum ekki því Vör á enn nokkur afkvæmi á landinu, Von, Viðar, Vörð, Salvöru, Vigdísi og Víði.. Allt efnishross.

Hér kemur smá myndasyrpa af Victori:

Snorri og Victor í sveiflu á Sörlasvæðinu

Pabbi og Victor í sveiflu á Sörlasvæðinu

Pabbi og Victor á Landsbankamóti Sörla

Pabbi og Victor á Landsbankamóti Sörla

Victor og Páll Bragi í töltúrslitum á íþróttamóti Sleipnis

Victor og Páll Bragi í töltúrslitum á íþróttamóti Sleipnis

Victor og Danni í töltúrslitum á Gæðingaveislu Sörla

Victor og Danni í töltúrslitum á Gæðingaveislu Sörla

Sep

10

Vörður

By bryndis

Vörður frá Hafnarfirði, undan Vör og Gídeon frá Lækjarbotnum, hefur verið í miklum framförum nú í vetur og í vor. Lítið var um brokk hjá honum en nú í vor og í sumar fór það allt að koma og er hann núna svo fínn á brokkinu sínu.

Við tókum hann aðeins inn í ágúst til að undirbúa hann betur fyrir næsta vetur, fengum alvöru járningu á hann frá Gunna og hann var bara ansi góður.

Hér er vídjó af Verði tekið í ágúst..: Vörður frá Hafnarfirði

Aug

29

Dropi frá Þóroddsstöðum

By bryndis

Ég tók nokkrar myndir af Dropa á Syðsta-Ósi þar sem hann er með nokkrar merar, þar á meðal 1.verðlauna merina okkar hana Vör frá Ytri-Reykjum, Kæti frá Skollagróf og Mjöll frá Syðsta-Ósi(1.verðl.fyrir hæfileika). Dropi er 2 vetra gamall foli undan Kvisti frá Skagaströnd(8,58) og Snót frá Þóroddsstöðum(8,20), hann er í eigu Bjarna Bjarnasonar á Þóroddsstöðum, er stór og myndarlegur.

Dropi frá Þóroddsstöðum

Dropi frá Þóroddsstöðum

Dropi á fullri ferð

Dropi á fullri ferð

Dropi er mjög þroskaður og stór miðað við aldur

Dropi er mjög þroskaður og stór miðað við aldur